top of page

Sálfræðiþjónusta á netinu

Sálfræðingur, barnasálfræðingur, fjarviðtöl, sálfræðingar, kvíði, depurð, streita, reiði, átröskun, þunglyndi,  áföll, burn-out

Sálfræðingur fyrir börn, ungmenni og fullorðna 

Værð sálfræðiþjónusta býður upp á sálfræðiviðtöl í gegnum netið. Hjá Værð starfa löggildir sálfræðingar sem sinna greiningu, meðferð og ráðgjöf fyrir börn, ungmenni og fullorðna. Tilgangur fjarþjónustunnar er að bjóða upp á aukið aðgengi almennings að sálfræðimeðferð og ráðgjöf. Værð sálfræðiþjónusta er rekin með leyfi frá Landlækni.

Sálfræðingar Værðar

Hjá Værð starfa eingöngu löggildir sálfræðingar með reynslu sem veita þér góða, hlýja og faglega þjónustu.

Hvaða sálfræðiþjónusta er í boði?

Screenshot 2022-08-07 at 11.39_edited.pn
Screenshot 2022-08-07 at 11_edited.png
Börn og ungmenni

Sálfræðingar Værðar vinna með börnum, ungmennum og fjölskyldum þeirra. Boðið er upp á meðferð/ráðgjöf fyrir börn og ungmenni við tilfinningavanda,  hegðunarvanda og fleira.

Screenshot 2022-08-07 at 11.41_edited.pn
Fullorðnir

Sálfræðingar Værðar veita ráðgjöf og einstaklingsmeðferð við m.a. almennri vanlíðan, streitu og kulnun, lágu sjálfsmati, kvíða, þunglyndi, svefn- og samskiptavanda. 

Screenshot 2022-08-07 at 11.31_edited.pn
Vinnustaðir

Værð býður uppá fjölbreytta og faglega ráðgjöf til fyrirtækja og stofnanna. Markmið okkar er að stuðla að auknum árangri, öryggi og vellíðan starfsmanna í vinnu og daglegu lífi.

Hvernig bóka ég sálfræðiviðtal?

1.
Fyrst ýtir þú á bóka viðtal hér

Byrjað er á því að ýta á "bóka viðtal hér" hnappinn. Við það færist þú sjálfkrafa yfir á síðu Köru Connect.

2.
Næst er ný skráning 

Þú óskar eftir þjónustu með því að fylla út grunnupplýsingar um þig. Mikilvægt er að taka fram hvaða þjónustu er verið að óska eftir. Þú færð í kjölfarið tölvupóst sem þú þarft að samþykkja frá þeim með því að skrá þig inn með rafrænum skilríkjum.

3.
Sálfræðingur hefur samband

Sálfræðingur mun hafa samband við þig í framhaldi í gegnum tölvupóst og bókar tíma með þér. Því er mikilvægt að fylgjast vel með tölvupóstinum sínum.

4.
Þú mætir svo í bókað fjarviðtal

Tímasetningu viðtala getur þú svo nálgast á þínu heimasvæði hjá Kara Connect. Þegar viðtal fer að hefjast skráir þú þig inn á heimasvæðið þitt. Þú ferð í myndfundakerfið og hefur viðtalið við sálfræðinginn með einum smelli.

Hvernig getum við aðstoðað?

Í fjarviðtölum getur þú eða barnið þitt fengið aðstoð við hvers konar sálrænum vanda eða erfiðleikum í lífinu, m.a. streitu/kulnun, lágu sjálfsmati, átröskun, ADHD, þunglyndi og kvíða. Einnig er hægt að fá aðstoð við að bæta lífsgæði, minnka svefnvanda og takast á við persónulegar áskoranir. 

Sálfræðiviðtöl á netinu, fjarviðtöl við sálfræðing, sálfræðiþjónusta í gegnum netið
1

Kvíði

2

Sjálfsmat

3

Þunglyndi

4

Streita/kulnun

5

Svefn

bottom of page